Miðvikudagur!
Jæja þá erum við búinn að
búa í Hesthömrum 9 kjallara íbúð til hægri og allt að verða komið á
sinn stað
ég er búinn að telja ég var svo dugleg í gær að það
eru aðeins 10 kassar eftir og það er mest megnið það sem ég
Húsfreyjan og Húsbóndinn á þessu heimili þurfum að henda ekki það
að kallinn er duglegur að henda Rusli eða það sem ég kalla rusl nei
en hann vill eiga allt.
Það sem kostaði 2 slysó
ferðir að flytja, já þið lásuð rétt Fyrst á Laugardag var ég að
pakka og var ný búinn að taka kúlurnar af rúmmgafinum og þá rak ég
buttan svo hrottarlega í að ég skar mig beint og djúpt í liðarmótin
og þurfti að sauða 3 spor, skil samt ekki það blæddi svo mikið það
er alveg víst að ég er blóð mikil, síðan bannaði læknirinn mig að
beygja puttann, og á sunnudag var Helgi að hjálpa mömmu og Begga að
flytja eitthvað eldhús drasl og hélt hann á þunngri borðplötu, og
gleymdi Matta að loka hurðinni á sendi bílnum og klemdi Helgi sig á
milli borðplötunar og bílhurðarinnar, þetta var nú meiri óheppnin í
okkur. En þetta varð allt í lagi hann bólgnaði bara pínu
upp.
Síðustudagar hafa verið
mjög einfaldir hjá mér ég tek uppúr kössum og vinn til skiptis
Helgi hefur bara verið að vinna á fullu.
Jæja en svo er það bara
hreingerningar herferð í kvöld en eins og flest allir vita að þá
þegar maður flytur byður maður ekki fólk að far úr skónum og hef ég
bara verið að gera svo mikið að ég hef ekkert haft tíma fyrir að
þrífa en ég á nokkra kassa eftir sem ég klára í kvöld
en eg
fer að vinna 14:00 og er búinn kl 20:00 n ég er nýbúin að fá stöðu
og launahækkun! Jæja nóg um það en ég er svo ánægð að það gengur
vel hjá mér en nú hef ég verið að bulla alveg fram og suður alla
þessa bloggfærslu,
Það sem er á döfinni
er!
Hreingerningardagur,
verslunarferð og innfluttningsparty.
En við ætlum að vera með
frekar óvenjulegt innfluttningsparty okkur langar miklu frekar að
hafa þetta rólegt kvöld með mat, vín og spilum síðan verður kanski
kíkt á djammið hver veit, en við nennum þessu háværa
innfluttningsparty ekki, og fullt af fólki sem kemur með því og
maður þekkir ekki helminginn vegna þess að þetta eru vinir vina
mans.
En það verður ekkrt spess
fyrir fjölskylduna þeir koma sem vilja koma en ég ætla að fara baka
og setja inn í frysti. Svo verð ég að fara versla mér kaffikönnu
vegna þess að það er ekki hægt að bjóða gestum uppá
pressukaffi!
Jæja nú er komið nóg í bili
en ég bið að heilsa og vona að sjá sem flesta!
Húsfreyjan á Hesthömrum 9
kjallari.